Fotbolti.net
14.09.16 - 09:17
Magnús Már Einarsson

Aleksander Ceferin nýr forseti UEFA (Staðfest)

Aleksander Ceferin.

Aleksander Ceferin.

Canon

Mynd: Getty Images

Aleksander Ceferin hefur verið kjörinn nýr forseti UEFA en hann tekur við af Michel Platini sem hætti vegna spillingamála.

Ceferin fékk 42 atkvæði af 55 mögulegum í kjörinu og hafði betur gegn Michael Van Praag.

Van Praag er 68 ára gamall Hollendingur en KSÍ kaus hann í kjörinu.
Ceferin hefur verið forseti slóvenska knattspyrnusambandsins undanfarin fimm ár. Þrátt fyrir að vera ekki þekktur hefur hann unnið sér inn mikið fylgi. Hann hefur fengið lof fyrir vinnu sína í heimalandinu. Fjárhagur fótboltans í Slóveníu hefur batnað mikið og áhorfendaaukning orðið í landinu.

Ceferin, 48 ára, hefur lofað því að berjast gegn hagræðingu úrslita og spillingu ásamt því að vinna í lyfjamálum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.