Stefan Spavic er búinn að framlengja samning sinn við Víði í Garði og mun leika fyrir félagið næsta sumar.
Stefan hefur verið mikilvægur hlekkur í vörn Víðis sem er búið að missa af toppsætunum í 2. deild. Víðir er í fjórða sæti deildarinnar, með 33 stig eftir 20 umferðir.
Stefan, fæddur 1992, gekk í raðir Víðis fyrir sumarið en hafði áður spilað 77 leiki fyrir Hugin í Inkasso-deildinni, 2. deild og 3. deild.
Víðir heimsækir Þrótt á Vogum í dag og á svo heimaleik við Dalvík/Reyni í síðustu umferð sumarsins.
Athugasemdir