Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 14. september 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Zlatan hætti að reima til að skora
Mynd: Getty Images
Hinn 39 ára gamli Zlatan Ibrahimovic kom inn af bekknum og skoraði í 2-0 sigri AC Milan gegn Lazio í ítölsku deildinni um helgina.

Zlatan skoraði eftir góða skyndisókn en hann var að reima skóinn þegar hún fór af stað. Hann var þó snöggur að átta sig á hlutunum og tók á rás í átt að marki Pepe Reina.

Boltinn barst til Ante Rebic sem kom honum á Zlatan sem var á auðum sjó og skoraði auðvelt mark.

Gengi Milan hefur snúist við eftir komu Zlatan til félagsins og eftir góðan seinni hluta síðasta tímabils er liðið með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir á nýrri leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner