Bayern vill 100 milljónir fyrir Olise - Chelsea reynir að fá Guehi og Maignan frítt - Konate ætlar til Real Madrid
   sun 14. september 2025 20:47
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Lazio tapaði gegn nýliðunum - Modric gerði sigurmarkið
Maurizio Sarri hefur ekki farið vel af stað með Lazio.
Maurizio Sarri hefur ekki farið vel af stað með Lazio.
Mynd: EPA
Modric er kominn með mark og stoðsendingu eftir þrjár fyrstu umferðirnar í Serie A.
Modric er kominn með mark og stoðsendingu eftir þrjár fyrstu umferðirnar í Serie A.
Mynd: EPA
Tveimur síðustu leikjunum er lokið í efstu deild ítalska boltans í dag þar sem Lazio tapaði óvænt gegn nýliðum Sassuolo á meðan AC Milan lagði Bologna að velli.

Alieu Fadera skoraði eina mark leiksins í Sassuolo þar sem gestirnir í liði Lazio voru ekki nægilega beittir.

Sassuolo hafði betur eftir jafnan leik og eru nýliðarnir komnir með sín fyrstu stig á deildartímabilinu. Bæði lið eiga því þrjú stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar.

Í Mílanó var það hinn fertugi Luka Modric sem skoraði eina mark leiksins í spennandi slag gegn Bologna, en þessi tvö lið voru í harðri baráttu á síðustu leiktíð og mættust meðal annars í úrslitaleik ítalska bikarsins.

Max Allegri tók við Milan í sumar og er liðið komið með sex stig eftir þrjár umferðir á nýju tímabili. Hann er þekktur fyrir að vera mjög ástríðufullur og var rekinn upp í stúku þegar hann mótmælti ákvörðun úr VAR-herberginu í kvöld.

Dómarinn dæmdi vítaspyrnu en sneri ákvörðuninni svo við eftir nánari athugun í skjánum. Christopher Nkunku lét sig falla til jarðar og hélt að hann hefði uppskorið vítaspyrnu, en svo var ekki.

Milan var sterkari aðilinn gegn Bologna og gaf ekki færi á sér. Fyrrum Chelsea mennirnir Nkunku og Christian Pulisic komu inn af bekknum í stjörnum prýddu liði Milan en tókst ekki að bæta við marki. Fikayo Tomori og Ruben Loftus-Cheek, sem eru líka fyrrum leikmenn Chelsea, voru í byrjunarliðinu.

Sassuolo 1 - 0 Lazio
1-0 Alieu Fadera ('70 )

Milan 1 - 0 Bologna
1-0 Luka Modric ('61 )
Athugasemdir
banner