Fotbolti.net
14.10.16 - 18:04
Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Stígsson aðstoðar Helga Sig hjá Fylki (Staðfest)

Óli Stígs er kominn í þjálfarateymi Fylkis.

Óli Stígs er kominn í þjálfarateymi Fylkis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Fylkir tilkynnti í dag að Ólafur Ingi Stígson hafi verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu. Hann mun aðstoða Helga Sigurðsson sem í gær var ráðinn þjálfari liðsins.
Óli hefur starfað við yngri flokka þjálfun hjá Fylki undanfarin ár en hann er uppalinn Fylkismaður.

Óli sem er 41 árs semur við Fylki til þriggja ára en hann er næst leikjahæsti leikmaður Fylkis í efstu deild, spilaði 9 A-landsleiki ásamt 30 leikjum með yngri landsliðum.

„Knattspyrnudeild Fylkis bindur miklar vonir við ráðningu Óla og býður hann velkomna til starfa,\" segir í tilkynningu félagsins.

Hermann Hreiðarsson þjálfaði liðið í sumar en hætti um síðustu helgi.

Honum til aðstoðar voru Garðar Jóhannsson sem spilaði einnig með liðinu og Zoran Ljubicic sem kom inn á miðju tímabili.

Fylkir féll úr Pepsi-deildinni í haust eftir að hafa endað í næst neðsta sæti deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.