14.10.16 - 17:05
Elvar Geir Magnússon
Steven Lennon gerir nýjan samning við FH (Staðfest)

Steven Lennon í leik með FH í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Steven Lennon í leik með FH í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Steven Lennon verður áfram í herbúðum Íslandsmeistara FH. Hafnfirðingar tilkynntu á Twitter áðan að hann hefði gert nýjan tveggja ára samning við félagið.
Lennon skoraði sex mörk í 20 leikjum í Pepsi-deildinni í sumar þegar FH-ingar urðu Íslandsmeistarar.
Lennon skoraði sex mörk í 20 leikjum í Pepsi-deildinni í sumar þegar FH-ingar urðu Íslandsmeistarar.
Lennon hefur leikið með Fimleikafélaginu síðan 2014 þegar hann kom frá Sandnes Ulf en þar á undan lék hann með Fram.
Alls hefur hann skorað 21 mark í 48 leikjum fyrir FH-inga í Pepsi-deildinni síðan hann mætti í Hafnarfjörðinn.
Samningur hans var að renna út og var hann sterklega orðaður við KA áður en hann skrifaði undir þennan nýja samning.
Lennon verður 29 ára í janúar.

Steven Lennon skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við FH. Þetta eru sannarlega gleðifréttir fyrir okkur FHinga. pic.twitter.com/bIqgLaaT7H
— FHingar.net (@fhingar) October 14, 2016