14.10.16 - 21:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Úlfur Blandon hættur með Gróttu (Staðfest)

Úlfur á hliðarlínunni í sumar

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson

Úlfur á hliðarlínunni í sumar

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Úlfur Blandon er hættur störfum hjá knattspyrnudeild Gróttu. Hann lætur af störfum sem þjálfari liðsins eftir að hafa stýrt liðinu í sumar.
Undir hans stjórn tryggði ungt og efnilegt Gróttulið sér sæti í Inkasso-deildinni að ári, en Gróttumenn urðu næsthlutskarpastir í 2. deild karla í sumar.

Það var greint frá þessu í slúðurpakka númer 3, sem birtur var á dögunum og þetta reyndist rétt.
Úlfur mun nú róa á önnur mið, en áður en hann tók við Gróttu síðastliðið haust þá var hann að þjálfa 2. flokk karla hjá Víkingi og 2. flokk kvenna hjá HK/Víkingi. Þar áður starfaði hann sem aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki Fram í Pepsi-deildinni og sem yfirþjálfari yngri flokka hjá Gróttu.
Knattspyrnudeild Gróttu þakkar Úlfi fyrir frábært og árangursríkt samstarf.