Fotbolti.net
14.10.19 - 13:47
Magnús Már Einarsson

Sameiginlegt lið Liverpool og Man Utd - Valdi alla frá Liverpool

Sameiginlegt lið Liverpool og Man Utd - Valdi alla frá Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Erkifjendurnir í Manchester United og Liverpool mætast í stórleik í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford á sunnudag.

Gengi liðanna á tímabilinu hefur verið ólíkt en Liverpool er með fullt hús stiga á toppnum á meðan Manchester United er í 12. sæti.

Danny Mills, sérfræðingur Sky og fyrrum leikmaður Manchester City, fékk það verkefni að velja sameiginlegt byrjunarlið Liverpool og Manchester United.

Mills valdi þar alla leikmenn Liverpool og engan frá United.
„Jordan Henderson, Fabinho og Georginio Wijnaldum eru að spila mjög vel. Ef Paul Pogba er í sínu besta standi þá gæti hann komist inn en hann hefur ekki spilað vel hingað til," sagði Mills meðal annars.
Sameiginlega liðið hjá Danny Mills.

Sameiginlega liðið hjá Danny Mills.

Canon

Mynd: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.