14.11.12 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
Helgi Valur Pálsson í Hauka (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Hauka

Mynd: Heimasíða Hauka
Bakvörðurinn Helgi Valur Pálsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hauka. Þessi tvítugi leikmaður er uppalinn hjá FH.
Hann á þrjá meistaraflokksleiki með FH en allir komu þeir sumarið 2010.

Á liðnu sumri lék Helgi með BÍ/Bolungarvík sem lánsmaður og þótti standa sig vel. Hann á að baki tvo landsleiki með U19 ára landsliði Íslands.
Helgi hefur Haukatengingu en faðir hans er stórsöngvarinn Páll Rósinkranz sem syngur stuðningsmannalag Hauka.
Haukar hafa verið duglegir við að bæta við sig leikmönnum en í síðasta mánuði skrifuðu fimm leikmenn undir hjá félaginu sem tók þátt í toppbaráttu 1. deildar í sumar en ætlar upp í Pepsi-deildina á næsta ári.