Fotbolti.net
14.11.16 - 18:19
Jóhann Ingi Hafþórsson

Katrín Ómars og Þórunn Jóns í KR (Staðfest)

Katrín Ómarsdóttir er komin aftur í KR.

Katrín Ómarsdóttir er komin aftur í KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Kvennaboltinn
Katrín Ómarsdóttir og Þórunn Jónsdóttir hafa skrifað undir samning við KR.
Þær eru báðar uppaldar í KR en Katrín hefur undanfarin sex ár verið í atvinnumennsku með liðum eins og Kristianstads, Liverpool og Doncaster. Hún hefur spilað 69 landsleiki og skorað í þeim tíu mörk en hún hefur spilað á báðum Evrópumótunum sem Ísland hefur spilað á hingað til.

Katrín var svo partur af íslenska landsliðshópnum sem mætti Danmörku, Úsbekistan og Kína á móti í síðasta mánuði.

Þórunn hefur verið átta ár í atvinnumennsku og þar af fjögur ár í Brasilíu en hún hefur undanfarin ár leikið með Avaldsnes í Noregi. Þórunn á 15 landsleiki með A-landsliði Íslands.

Þær urðu báðar Íslandsmeistarar 2002 og 2003 með KR en Katrín á 82 leiki með KR og hefur skorað í þeim 30 mörk á meðan Þórunn hefur leikið 109 leiki með Vesturbæjarfélaginu og skorað 11 mörk.

Ljóst er að KR ætlar sér stóra hluti í Pepsi-deildinni næsta sumar eftir erfið undanfarin ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.