14.11.16 - 16:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Lampard hættur hjá New York City (Staðfest)

Frank Lampard í leik með New York City.

Mynd: Getty Images

Frank Lampard í leik með New York City.

Mynd: Getty Images
Frank Lampard staðfesti í dag að hann er hættur hjá bandaríska félaginu New York City FC.
Það gerði hann á Instagram þar sem hann setti mynd af sér klappa fyrir stuðningsmönnum félagsins.
<i>„Mig langar að þakka fullt af fólki fyrir stuðninginn sem ég hef fengið undanfarin tvö ár. Ég hef notið þess að spila með liðsfélögum mínum. Stuðningmennirnir hafa verið frábærir og allir sem vinna hjá félaginu hafa gert það létt fyrir mig að koma mér vel fyrir hérna. Ég hef notið þess að spila hérna og ég er þakklátur fyrir tækifærið. Ég kveð með mikið af minningum og ég mun tilkynna næsta áfangastað von bráðar,\"</i> skrifaði Lampard við myndina.

Lampard spilaði 29 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 15 mörk. New York komst í undanúrslit MLS deildarinnar á leiktíðinni.