Fotbolti.net
14.11.16 - 08:30
Kristófer Kristjánsson

Stubbur í Þór (Staðfest)

Steinþór ,,Stubbur\" Auðunsson

Steinþór ,,Stubbur\" Auðunsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Markvörðurinn Steinþór Már Auðunsson, sem gengur undir gælunafninu Stubbur, er gengin til liðs við Þór.

Stubbur, 26 ára, lék með Þórsurum sumarið 2015 en hann er uppalinn hjá erkifjendunum í KA.
Nú í sumar lék hann með Völsungi í 2. deildinni og spilaði 24 leiki í deild og bikar.

Hann hafði áður spilað með Völsungi árin 2010 og 2011.

Einnig lék hann með Dalvík/Reyni á árunum 2011-2014 þar sem hann spilaði 76 leiki alls.

Samningur hans við Þór er til eins árs og mun hann berjast við Aron Birki Stefánsson um markmannsstöðu liðsins í Inkasso deildinni næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.