14.11.20 - 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grealish: Samanburðurinn við Mount pirrandi

Mount, Sancho og Grealish

Mynd: Getty Images

Mount, Sancho og Grealish

Mynd: Getty Images
<i>„Þetta er í raunininn svolítið pirrandi því hann fær örugglega stundum gagnrýni út af því. Mér finnst hann frábær leikmaður og held að við séum ekki einu sinni að berjast um sömu stöðuna,"</i> segir Jack Grealish.
Grealish var spurður út í samanburðinn á Mason Mount þegar kemur að enska landsliðinu en báðir geta þeir leyst hlutverk á miðjunni sem og úti á vinstri vængnum.

Þeir áttu báðir góðan leik þegar England vann Írland 3-0 á fimmtudag. Það var annar byrjunarliðsleikur Grealish með landsliðinu.
„Ég elska Mason og finnst hann frábær leikmaður. Ef eitthvað er finnst mér hann vanmetinn, hann á allt hrós skilið," sagði Grealish.
Southgate hefur valið Mason Mount fram yfir Grealish í verkefnum til þessa og hefur mikil umræða skapast á Englandi þar sem stuðningsmenn Grealish eru háværir.