Fotbolti.net
14.11.26 - 17:30
Ívan Guðjón Baldursson

Sigurður Bjartur í stuði - Jafntefli á Ítalíu

Sigurður Bjartur í stuði - Jafntefli á Ítalíu
Canon

Mynd: AD Merida

Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins í Evrópu og skoraði Sigurður Bjartur Hallsson fyrsta markið í þægilegum sigri hjá Mérida í spænsku C-deildinni.
Mérida vann auðveldan sigur á útivelli gegn botnliði Ourense og sitja Sigurður Bjartur og félagar í þriðja sæti deildarinnar sem stendur, með 19 stig eftir 12 umferðir. Þeir eru þó 9 stigum á eftir toppliði Lugo sem á leik til góða.

Sigurður fékk að spila fyrri hálfleikinn í dag og var skipt af velli í leikhlé þegar staðan var þegar orðin 0-3. Sigurður er núna kominn með 4 mörk í síðustu 6 leikjum þrátt fyrir að hafa yfirleitt byrjað á bekknum.

Í C-deildinni á Ítalíu var Kristófer Jónsson á sínum stað á miðjunni hjá Reggiana sem gerði markalaust jafntefli við Livorno. Reggiana er í efri hluta deildarinnar með 21 stig eftir 14 umferðir.

Óttar Magnús Karlsson kom þá inn af bekknum í 3-3 jafntefli hjá Renate gegn Desenzano. Óttar spilaði í um það bil hálftíma en tókst ekki að skora. Renate er í fallbaráttu með 12 stig eftir 14 umferðir.

Að lokum unnu liðsfélagar Benonýs Breka Andréssonar í liði Stockport County góðan heimasigur í C-deildinni á Englandi, en Benoný var ekki með vegna landsliðsverkefnis með U21. Stockport lagði Reading að velli og deilir toppsætinu í League One með 29 stig eftir 15 umferðir.

Huddersfield er líka með 29 stig en á leik til góða.

Ourense 1 - 3 Merida
0-1 Sigurður Bjartur Hallsson ('37)
0-2 D. Sandoval ('41)
0-3 Kone ('45+1)
1-3 D. Tejon ('79)

Reggiana 0 - 0 Livorno

Renate 3 - 3 Desenzano

Stockport 3 - 1 Reading
Sigurður Bjartur í stuði - Jafntefli á Ítalíu
Canon

Mynd: Reggiana FC

England 1. deild - karlar

#LiðLmunStig
1Huddersfield14+1629
2Stockport15+1329
3Oxford United13+1126
4Luton14+624
5Sheff Wed14+923
6Plymouth15+123
7Reading15+922
8Bradford13+222
9MK Dons14+521
10Cambridge United14021
11Leicester13+319
12Mansfield Town13+219
13Wycombe13-218
14Leyton Orient13+517
15Burton15-617
16Stevenage12+416
17Wimbledon14-1116
18Notts County12-114
19Wigan15-1014
20Blackpool13-512
21Doncaster Rovers13-812
22Peterboro13-1210
23Barnsley13-119
24Bromley13-209
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.