14.11.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Þriðja stærsta tap í sögu Grikklands

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Gríska landsliðið fékk útreið í 7-0 tapi þess gegn hollenska landsliðinu í Þjóðadeildinni í gær en þetta var þriðja stærsta tap í sögu landsliðsins.

TENGT EFNI
Þjóðadeildin: Hollendingar í sjöunda himni - Wirtz skoraði í sigri Þjóðverja
Grikkir hafa komið verulega á óvart í Þjóðadeildinni til þessa og voru taplausir fyrir leikinn gegn Hollandi í gær, en þar beið þeirra algjör martröð.
Allt sem gat farið úrskeiðis fór úrskeiðis í fyrri hálfleiknum þar sem Grikkir fengu á sig fimm mörk. Tijjani Reijnders skoraði þrennu fyrir Hollendinga, sem bættu síðan við tveimur mörkum í síðari hálfleik og fögnuðu ótrúlegum 7-0 sigri.
Þetta var þriðja stærsta tap í sögu gríska landsliðsins, en aðeins 11-1 tapið gegn Ungverjalandi árið 1938 og 9-0 tapið gegn Svíþjóð árið 1920 voru stærri.
Þá var þetta stærsta tap Grikkja síðan árið 1989 þegar þeir steinlágu 7-1 gegn Ungverjum.
Ivan Jovanovic, þjálfari Grikklands, var niðurbrotinn þegar hann mætti í viðtal eftir leik og átti erfitt með að lýsa því sem hafði gerst.
„Þessi sviðsmynd var ekki hin ánægjulegasta. Við töpuðum stórt á öllum sviðum leiksins, bæði hvað varðar stig og líka hvað keppnina varðar og það er ekki það notalegasta undir þessum kringumstæðum að fara strax að hugsa um morgundaginn.“
„Við munum finna sársaukann af afleiðingum þessa taps, bæði útaf því hversu stórt tapið var en líka út af ímynd okkar á vellinum.“
„Við eigum mikilvægan leik eftir þrjá daga. Þessir 2-3 dagar verða ekki þeir auðveldustu saman vegna frammistöðunnar og úrslitanna, en við munum reyna að leiðrétta ímynd okkar svo við getum fengið eitthvað betra úr leiknum gegn Serbíu,“ sagði Jovanovic.
Það er þó ekki öll von úti hjá Grikkjum, sem sitja áfram í öðru sæti B-riðils A-deildarinnar þótt möguleikinn á toppsætinu sé úr sögunni. Þeir eiga enn góða möguleika á að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum, en til þess þurfa þeir að leggja Serba að velli í lokaumferðinni.