Fotbolti.net
14.11.26 - 12:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Leikmaður ársins hjá Þór framlengir

Leikmaður ársins hjá Þór framlengir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Birkir Stefánsson, fyrirliði Þórs, hefur framlengt samning sinn við félagið út árið 2028.

Aron Birkir var valinn leikmaður ársins á lokahófi Þórs eftir frábært tímabil síðasta sumar þar sem Þór bjargaði sér frá falli úr Bestu deildinni eftir spennandi lokaumferð.
Aron var fastamaður í marki liðsins og var virkilega sterkur á milli stanganna. Þá skoraði hann eftirminnilegt mark í 3-3 jafntefli gegn KR á Akureyri.

Hann er 27 ára og hefur leikið með Þór allan sinn feril. Hann spilaði sína fyrstu leiki árið 2016 en þeir eru orðnir 288 talsins. Hann á 11 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.