Fotbolti.net
14.11.26 - 16:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gera breytingu til heiðurs Ronaldo

Gera breytingu til heiðurs Ronaldo
Canon

Mynd: EPA

Portúgalska fótboltasambandið hefur gert breytingar á treyju númer sjö eftir að Cristiano Ronaldo lagði landsliðsskóna á hilluna.

Ronaldo lagði landsliðsskóna á hilluna á dögunum eftir að hann taldi að Jorge Jesus, landsliðsþjálfari, hafi svikið sig í síðasata landsliðsglugga þegar hann fékk ekki að koma inn á.
Heiðra Ronaldo þótt hann verði líklega ekki viðstaddur
TENGT EFNI

Heiðra Ronaldo þótt hann verði líklega ekki viðstaddur

Ronaldo er algjör goðsögn í heimsfótboltanum og portúgalska sambandið ætlar að heiðra hann þegar liðið mætir Danmörku í Þjóðadeildinni í kvöld. Það er hins vegar talið að Ronaldo verði ekki á staðnum.

Ronaldo er þekktur fyrir að klæðast treyju númer sjö en portúgalska sambandið hefur ákveðið að gera smávægilega breytingu. Sjöan verður með striki í miðjunni. Þetta smáatriði er ætlað að aðgreina þá útgáfu sem Ronaldo bar á sögulegum tíma sínum frá öllum framtíðarútgáfum og tryggja í raun að sérstök hönnun sem tengist metum hans sé áfram eingöngu fyrir hans tíma.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.