14.11.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Kalla eftir höfði forsetans eftir afhroðið gegn Íslandi

Ísland skoraði fimm í Plovdiv

Mynd: KSÍ

Ribarski ræddi við fjölmiðla eftir leikinn

Mynd: Bucephal Sports Management

Ísland skoraði fimm í Plovdiv

Mynd: KSÍ

Stuðningsmenn búlgarska landsliðsins hafa kallað eftir afsögn stjórnarmanna búlgarska fótboltasambandsins eftir 5-0 afhroðið gegn Íslandi í Þjóðadeildinni í gær.

TENGT EFNI
Aðeins England unnið stærri útisigur á Búlgaríu
Það er grátlegt fyrir búlgörsku þjóðina að sjá hversu langt landsliðið hefur fallið frá því sem áður var.
Búlgaría var eitt sinn öflug fótboltaþjóð sem ól af sér frábæra leikmenn á borð við Dimitar Berbatov og Hristo Stoichkov, en í dag er liðið aðeins skugginn af sjálfu sér.
Atanas Ribarski stýrir liðinu til bráðabirgða eftir að Aleksander Dimitrov var rekinn í september, en óánægjan með stöðu landsliðsins er orðin gríðarleg meðal stuðningsmanna.
Í leiknum gegn Íslandi hrópuðu stuðningsmenn „Segið störfum ykkar lausum!“ en þeim skilaboðum var ekki beint að Ribarski, heldur stjórn búlgarska fótboltasambandsins, sem margir kenna um þá stöðu sem landsliðið er komið í.
„Þessu var beint að Georgi Ivanov, forseta sambandsins, sem setti sér það stórt markmið að koma liðinu upp í B-deildina. Eftir þennan leik hljómar það eins og ömurlegur brandari, því Ísland sýndi okkur svo ekki verður um villst hvar við eigum heima, meðal þeirra neðstu í Evrópu í D-deildinni,“ segir í umfjöllun SegaBG.
Ribarski var sjálfur niðurbrotinn eftir stórtapið og bað stuðningsmenn afsökunar á frammistöðunni. Hann viðurkenndi jafnframt að íslenska landsliðið væri komið mun lengra í sinni uppbyggingu en það búlgarska.
„Mjög þungt tap. Það eina sem við getum gert er að biðja stuðningsmennina afsökunar. Þetta er óviðunandi. Við fengum á okkur mark úr vítaspyrnu og eftir það varð þetta erfitt. Í seinni hálfleiknum vildum við koma okkur aftur inn í leikinn, en svona á liðið ekki að spila. Við töpuðum of mörgum einvígum og misstum boltann allt of oft.“
„Við gerðum fjölmörg mistök án þess að vera undir nokkurri pressu og staðsetningar okkar í vítateignum voru skelfilegar í nánast hvert einasta skipti sem sóknirnar komu upp vængina. Það leiddi til þessara hræðilegu úrslita.“
„Mórall leikmannanna hrundi og það má ekki gerast á þessu stigi, sérstaklega ekki í landsliðinu. Ég get ekki kvartað yfir viljanum, en eftir annað markið virtist þetta verða okkur ofviða. Við misstum áttirnar í síðari hálfleik og vorum með boltann án þess að vita almennilega hvað við ætluðum að gera við hann. Það er löng vegferð fram undan og þetta lagast klárlega ekki á einni nóttu.“
Ribarski benti síðan á íslenska landsliðið sem dæmi um það hversu miklu hægt sé að áorka með markvissri uppbyggingu til lengri tíma.
„Landslið eru byggð upp á mörgum árum og eru afrakstur þeirrar miklu vinnu sem félögin leggja í að þróa leikmenn. Ísland hefur verið að byggja upp sitt lið síðustu tíu til tólf árin, er með leikmenn í fimm sterkustu deildum Evrópu og er miklu betra lið en við. Það eina jákvæða við leikinn í dag voru innkomur (Georgi) Lazarov og (Ivan) Pankov.“
„Það er ekki mitt að dæma um það hversu langt við getum náð. Við þurfum langtímaáætlun og mun betra jafnvægi milli reynslumikilla og yngri leikmanna. Eins og ég sagði áður er þetta mjög löng vegferð,“ sagði Ribarski í lokin.