Fotbolti.net
14.11.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Aðeins England unnið stærri útisigur á Búlgaríu

Andri Lucas skorar eitt af þremur mörkum sínum gegn Búlgaríu

Andri Lucas skorar eitt af þremur mörkum sínum gegn Búlgaríu

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Búlgarska landsliðið er í dag skugginn af sjálfu sér, en eitt sinn var Búlgaría ein sterkasta fótboltaþjóð Evrópu.
Andri Lucas með þrennu þegar Ísland valtaði yfir slaka Búlgara
TENGT EFNI

Andri Lucas með þrennu þegar Ísland valtaði yfir slaka Búlgara

Á tíunda áratugnum áttu Búlgarar mikilli velgengni að fagna og náðu meðal annars fjórða sæti á HM 1994 áður en þeir tryggðu sér sæti á Evrópumótinu tveimur árum síðar.

Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og er búlgarska landsliðið nú langt frá þeim styrkleika sem það hafði áður fyrr.

Það sást berlega í gær þegar Búlgarar steinlágu 5-0 gegn Íslandi og urðu þar með fyrir sínu næststærsta tapi á heimavelli í sögunni.

Stærsta heimatapið kom gegn Englendingum í undankeppni EM í október 2019, þegar Búlgarar töpuðu 6-0.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.