Fotbolti.net
14.11.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Dorgu metinn óleikfær - Sendur aftur til Manchester

Dorgu metinn óleikfær - Sendur aftur til Manchester
Canon

Mynd: EPA

Patrick Dorgu hefur verið sendur aftur til Manchester United eftir að læknateymi danska landsliðsins komst að þeirri niðurstöðu að hann væri ekki nægilega leikfær til að taka þátt í komandi landsleikjum.
Dorgu glímdi við meiðsli hjá United í upphafi leiktíðar en hefur verið að komast á skrið að undanförnu. Hann átti meðal annars frábæran leik gegn Aston Villa í síðustu umferð þar sem hann skoraði og lagði upp í fjörugu 4-4 jafntefli.

Hann var valinn í danska landsliðshópinn fyrir núverandi verkefni en hefur nú verið sendur aftur til Manchester eftir skoðun hjá læknateymi landsliðsins.

Læknarnir telja Dorgu ekki vera í nægilega góðu ástandi til að taka þátt í leikjunum tveimur og virðist ákvörðunin fyrst og fremst vera tekin til að koma í veg fyrir frekari meiðsli.

„Við höfum rannsakað Dorgu bak og fyrir og niðurstöðurnar voru ekki nægilega góðar og því getur hann ekki verið með í þessum tveimur leikjum.“

„Hann þarf meiri hvíld eftir meiðslin þannig við erum að senda hann heim í áframhaldandi endurhæfingu,“
segir í tilkynningu frá læknateymi danska landsliðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.