Fotbolti.net
14.12.12 - 13:54
Hafliði Breiðfjörð

Þorlákur Árnason tekur við U17 ára landsliði karla (Staðfest)

Þorlákur Árnason er nýr þjálfari U17 ára landsliðs karla.

Þorlákur Árnason er nýr þjálfari U17 ára landsliðs karla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KSÍ tilkynnti á vef sínum í dag að Þorlákur Árnason þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar hafi verið ráðinn þjálfari U17 ára landsliðs karla.
Þorlákur tekur við starfinu frá næstu áramótum.

Hann tekur við starfinu af Gunnari Guðmundssyni sem hætti með liðið í haust og ákvað að snúa sér að þjálfun karlaliðs Selfoss í 1. deildinni.

Þorlákur hefur verið þjálfari U17 ára liðs kvenna undanfarin ár og fór meðal annars með liðið í fjögurra liða úrslit á Evrópumótinu 2011.

Hann gerði Stjörnuna að bikarmeisturum í sumar og Íslandsmeisturum í fyrrasumar. Hann hefur áður þjálfað karlalið Vals, Fylkis og Stjörnunnar.

Heimild: KSÍ.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.