Fotbolti.net
14.12.16 - 18:30
Elvar Geir Magnússon

Bazoer til Wolfsburg (Staðfest)

Bazoer er miðjumaður sem á framtíðina fyrir sér.

Bazoer er miðjumaður sem á framtíðina fyrir sér.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýska félagið Wolfsburg hefur staðfest kaup á miðjumanninum tvítuga Riechedly Bazoer frá Ajax í Hollandi. Bazoer hefur skrifað undir fjögurra og hálfs árs samning og kemur til móts við þýska liðið eftir áramót.
Samkvæmt yfirlýsingu á heimasíðu Ajax borgar Wolfsburg 12 milljónir evra fyrir Bazoer en Arsenal er meðal félaga sem hafa sýnt honum áhuga.

„Það var samkeppni um leikmanninn en við fögnum því að hann hafi valið okkur,\" segir Olaf Rebbe, yfirmaður íþróttamála hjá Wolfsburg.

„Við erum sannfærðir um að hann haldi áfram að þróast og bæta sig hjá okkur.\"

Wofsburg er í 15. sæti þýsku deildarinnar og skuggalega nálægt því að vera í fallsæti. Fjárhagur félagsisn hefur skaðast vegna fjárhagsvandræða eigenda félagsins, Volkswagen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.