14.12.16 - 14:39
Elvar Geir Magnússon
Nicolaj Köhlert í Val (Staðfest)

Nicolaj Köhlert er kominn í Val.

Mynd: Silkeborg

Nicolaj Köhlert er kominn í Val.

Mynd: Silkeborg
Danski miðjumaðurinn Nicolaj Köhlert hefur skrifað undir tveggja ára samning við bikarmeistara Vals. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Hinn 23 ára gamli Nicolaj var á mála hjá Silkeborg en í sumar var hann á láni hjá NSI Runavík í Færeyjum. Hann fór 16 ára gamall til Liverpool á reynslu og Rafa Benítez ákvað í kjölfarið að bjóða honum samning.
Nicolaj var í tvö ár hjá Liverpool þar sem hann var í unglingaliðinu með Raheem Sterling og Jon Flanagan. Hann æfði einnig með varaliði Liverpool á tíma sínum hjá félaginu.
Þaðan fór Nicolaj til Rangers í Skotlandi eitt tímabil áður en hann samdi við Silkeborg. Nicolaj á 36 leiki að baki með Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni.
„Það er virkilega spennandi að koma til Vals. Þetta virkar mjög flott félag með mikla sögu og hefð. Ég kom hingað nýlega í yfir helgi og ræddi við fólk í félaginu og lýst mjög vel á allt hérna,\" sagði Nicolaj við heimasíðu Vals.
„Ég get spilað aftarlega á vellinum eða á miðri miðjunni, stundum kallaður \"box-to-box\" spilari. Ég vil vera mikið í boltanum, byggja upp sóknir og dreifa boltanum til liðsfélaga minna.\"
„Íslenskur fótbolti er á mikilli uppleið og fær mikla athygli í dag, mikið til þökk sé EM á síðasta ári. Íslenskir knattspyrnumenn hafa bætt sig mikið og það er mikið tempó í Íslenska boltanum, ég hlakka til að koma.\"
Valsmenn sem höfnuðu í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar og hömpuðu bikarmeistaratitlinum fengu annan leikmann til sín í síðustu viku þegar Dion Acoff kom frá Þrótti.