Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 14. desember 2018 07:00
Arnar Helgi Magnússon
Andri Jónasson í Þrótt R. (Staðfest)
Andri í leik með ÍR.
Andri í leik með ÍR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Jónasson er genginn til liðs við Þrótt Reykjavík en hann kemur til félagsins frá ÍR.

Andri sem er fæddur árið 1994 hefur leikið síðustu fjögur tímbil með ÍR og ýmist spilað sem hægri bakvörður eða hægri kantmaður.

Í sumar skoraði Andri þrjú mörk í sautján leikjum en í fyrra var hann með fjögur mörk í 21 leik.

Andri er uppalinn hjá FH en hann hefur einnig leikið með Fjarðabyggð á ferli sínum.

Andri Jónasson staðfesti í samtali við Fótbolta.net í síðasta mánuði að hann væri á förum frá félaginu og að hann vildi spila í Inkasso deildinni næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner