Fotbolti.net
14.12.21 - 16:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Adam Örn yfirgefur Tromsö (Staðfest)

Adam Örn í leik með Tromsö

Adam Örn í leik með Tromsö

Canon

Mynd: Rune Stoltz Bertinussen

Adam Örn Arnarson verður ekki áfram hjá Tromsö. Samningur hans við félagið rennur út um áramótin.

Adam er 26 ára varnarmaður sem uppalinn er í Breiðabliki en hefur verið í atvinnumennsku frá árinu 2013.
Árið 2013 gekk hann í raðir NEC Nijmegen í Hollandi en fór þaðan einu og hálfu síðar og samdi við Nordsjælland í Danmörku. Næsta stopp var hjá Álasundi í Noregi árið 2016 og eftir þrjú tímabil í Noregi samdi hann við Gornik Zabrze í Póllandi.

Adam samdi svo við Tromsö snemma á síðasta ári og hjálpaði liðinu að komast upp í efstu deild.

Sjá einnig:
Adam píndi sig áfram og sýpur seyðið af því - „Maður vill ekki bregðast liðinu" (5. nóv '20)
Svaraði fyrir um þrjá leikmenn sem hafa verið orðaðir við KA
Hann glímdi við meiðsli seinni hluta síðasgta tímabils eftir að hafa pínt sig í gegnum meiðsli um miðbik mótsins. Adam kom við sögu í þrettán leikjum, skoraði eitt mark og lagði upp eitt á leiktíðinni. Adam var ónotaður varamaður í lokaleiknum gegn Viking.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.