15.01.17 - 21:40
Stefnir Stefánsson
Zaza til Valencia (Staðfest)

Zaza í leik með West Ham

Mynd: GettyImages

Zaza í leik með West Ham

Mynd: GettyImages
Simone Zaza sem var á mála hjá West Ham hefur yfirgefið England og gengið til liðs við Valencia á Spáni.
Zaza hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir að hann gekk til liðs við West Ham á láni frá Juventus fyrir þetta tímabil. Hann lék aðeins 11 leiki fyrir liðið og tókst ekki að skora í þeim leikjum. Það var ákvæði í lánssamningi hans við West Ham að ef hann myndi spila 14 leiki fyrir félagið yrðu þeir að kaupa hann.
Valencia hefur nú tilkynnt á heimasíðu sinni að Zaza muni leika með liðinu á láni út þetta tímabil með möguleika á kaupum að láni loknu standist hann væntingar þeirra.
Zaza sem á 16 leiki fyrir ítalska landsliðið hefur farið um víðan völl þrátt fyrir að vera einunigs 26 ára gamall. Að West Ham, Valencia og Juventus undanskildum hefur hann leikið fyrir Atalanta, Sampdoria, Juve Stabia, Viareggio, Ascoli og Sassulo.