Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 15. janúar 2019 21:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi bauð Gunnari á leik - „Takk, takk, takk fyrir allt Gylfi."
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Getty Images
Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson og leikmaður Everton í ensku úrvalsdeildinni er mikill öðlingur.

Dagmar Ýr, móðir hins sex ára gamla Gunnars Holger, birtir í kvöld færslu á Facebook þar sem hún segir frá því að Gylfi hafi haft samband við sig á síðasta ári. Gylfi hafði samband eftir að hann sá fréttir af Gunnari Holger, en hann hefur verið lagður í gróft einelti.

Hér má sjá frétt Vísis um málið.

Gylfi hafði samband og bauð Gunnari á Everton leik og margt fleira.

Færslan hjá móður Gunars er svohljóðandi:

„Geggjuð ferð að baki!"

„Í nóvember, í kjölfarið af fréttunum af Gunnari Holger, hafði Gylfi Þór Sigurðsson samband við mig. Hann vildi bjóða Gunnari á Everton leik, því honum þótti svo leiðinlegt að heyra hvernig þetta væri hjá Gunnari í skólanum."

„Gylfi bauð okkur Gunnari til Liverpool á leik hjá Everton. Hann reddaði því líka að Gunnar fengi að koma á æfingarsvæðið hjá Everton að horfa á æfingu hjá þeim."

„Eftir æfinguna þá kom Gylfi og spjallaði við Gunnar og Gunnar gaf honum innrömmuð fótboltaspjöld af sér. Gylfi áritaði takkaskónna hans Gunnars og landsliðsbolina okkar."

„Daginn eftir var svo leikurinn og þvílík upplifun sem það var! Vorum í Sky Sports Studio boxinu, með mat og drykki eins og við vildum. Eftir leikinn þá vorum við Gunnar sótt upp í boxið og Gylfi spjallaði við Gunnar, labbaði með okkur út á fótboltavöllinn og gaf honum treyjuna sem hann var í á leiknum, áritaða."

„Gylfi sagði við Gunnar að hann þyrfti að vera oftar á leik hjá þeim því þeir unnu loksins. Gunnar heldur því fram núna að hann sé lukkudýr Everton, að hann þurfi að vera á öllum leikjum Everton og að liðið eigi hann."

„Þetta var svo trufluð upplifun og geggjað að sjá Gunnar svona hamingjusamann."

„Takk, takk, takk fyrir allt Gylfi. Takk, Gylfi, fyrir að gera barnið mitt að hamingjusamasta barni sem ég hef séð í langan tíma."


Hér að neðan má sjá færsluna og myndir sem henni fylgja. Mjög fallega gert hjá landsliðsmanninum!


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner