Fotbolti.net
15.01.20 - 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arteta: Ekkert til í Stones og Kessie sögunum

Arteta: Ekkert til í Stones og Kessie sögunum
Canon

Mynd: Getty Images

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var í viðtali í dag spurður út í sögusagnir um leikmannakaup Arsenal. Franck Kessie hjá AC Milan og John Stones hjá Manchester City hafa verið orðaðir við Arsenal.

Arteta neitar því að Arsenal sé að skoða þessa leikmenn.
„Það er enginn sannleikur í sögunum um John Stones og það sama með Franck Kessie," sagði Arteta.

„John er leikmaður sem ég kann að meta og þegar ég horfi á miðverði sé ég mikið í honum sem mér líkar en ég er ekki að íhuga að kaupa hann," sagði Arteta um sögusagnirnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.