Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur verið lánuð frá Breiðabliki til AC Milan.
Félagaskiptin eru gengin í gegn samkvæmt vef KSÍ. Berglind fór á dögunum að skoða aðstæður hjá Milan og skrifaði í kjölfarið undir lánssamning.
Félagaskiptin eru gengin í gegn samkvæmt vef KSÍ. Berglind fór á dögunum að skoða aðstæður hjá Milan og skrifaði í kjölfarið undir lánssamning.
Berglind verður á láni fram að upphafi Pepsi Max-deildarinnar en þá snýr hún heim til Breiðabliks.
Berglind var markahæst í deildinni í fyrra með sextán mörk þegar Breiðablik endaði í 2. sæti deildarinnar.
Athugasemdir