Manchester United fékk Wolves í heimsókn í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í kvöld og vann United 1-0.
Juan Mata skoraði sigurmarkið eftir snarpa sókn um miðbik seinni hálfleiks. Sky Sports gaf leikmönnum einkunn fyrir frammistöðuna í kvöld.
Juan Mata fékk hæstu einkunn, átta en Mason Greenwood, átján ára sóknarmaður Manchester United, fékk lægstu einkunn leikmanna sem byrjuðu. Greenwood fékk 5 i einkunnagjöfinni.

Einkunnir Sky Sports:
Manchester United: Romero (6), Wan-Bissaka (6), Lindelof (6), Maguire (7), Williams (7), Fred (6), Matic (6), Greenwood (5), Mata (8), James (6), Martial (7).
Varamaður: Pereira (5).
Wolves: Ruddy (7), Dendoncker (6), Coady (7), Saiss (6), Doherty (7), Joao Moutinho (7), Neves (7), Jonny (6), Traore (7), Jimenez (7), Pedro Neto (6).
Varamenn: Gibbs-White (5), Vinagre (5)
Athugasemdir