Montreal Impact í MLS-deildinni krækti í dag í leikmann frá Barcelona. Leikmaðurinn er Ballou Tabla sem er vængmaður.
Tabla er fæddur á Fílabeinsströndinni en er með kanadískt ríkisfang. Hann hefur leikið tvo landsleiki með Kanada. Hann var í landliðshópnum í verkefni á síðasta ári en er ekki í hópnum sem mætir Íslandi seinna i kvöld.
Tabla kom til Barcelona árið 2018 frá Montreal en snýr nú alfarið til baka. Tabla er tvítugur vængmaður. Hann var lánaður til Albacete seinni hluta tímabilsins í fyrra og svo í kjölfarið lánaður til Montreal út síðasta keppnistímabil í MLS.
Tabla lék ekki aðalliðsleik hjá Barcelona á tíma sínum hjá félaginu. Thierry Henry, fyrrum leikmaður Barcelona og Arsenal, er þjálfari Montreal. Kaupverðið er óuppgefið.
Athugasemdir