Wolves er búið að staðfesta lánssamning Rafael Mir Vicente við Huesca sem er í toppbaráttu spænsku B-deildarinnar.
Rafa Mir er 22 ára framherji sem spilaði 11 leiki fyrir Nottingham Forest í Championship deildinni fyrir áramót án þess að skora.
Hann gerði 7 mörk í 30 deildarleikjum með Las Palmas í B-deildinni á síðustu leiktíð.
Rafa Mir hefur ekki verið notaður í síðustu 8 leikjum Nottingham eða síðan í byrjun desember og er ljóst að hann hentar ekki liðinu fyrir seinni hluta tímabilsins.
Hann gerði 5 mörk í 10 leikjum fyrir U21 lið Spánar og var partur af hópnum sem vann EM U21 í fyrra.
Athugasemdir