Fotbolti.net
15.02.18 - 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sverrir Bartolozzi í Hauka (Staðfest)

Úr leik hjá Haukum síðasta sumar.

Úr leik hjá Haukum síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Haukar úr Hafnarfirði hafa fengið varnarmanninn Sverri Bartolozzi í sínar raðir frá Stjörnunni.

Sverrir þekkir nokkuð vel til á Ásvöllum eftir að hafa leikið með Haukum í yngri flokkunum.

Á síðasta tímabili lék hann stór hlutverk með Völsungi í 2. deild karla. Hann spilaði 21 leik í 2. deildinni, auk þess sem hann lék tvo leiki í Borgunarbikar karla með Húsvíkingum.
Hann hefur nú ákveðið að taka slaginn með Haukum í Inkasso-deildinni í sumar. Hann hefur verið að spila með liðinu í Fótbolta.net mótinu í vetur og getur nú tekið þátt í Lengjubikarnum.

Haukar byrjuðu Lengjubikarinn vel. Þeir unnu Leikni R. í Egilshöllinni á sunnudag, 4-1, eftir að hafa verið einum færri síðasta hálftímann.

Kristján Ómar Björnsson tók við liðinu af Stefáni Gíslasyni eftir síðasta tímabil og mun stýra liðinu í sumar.

Komnir:
Jökull Blængsson frá Fjölni (Á láni)
Indriði Áki Þorláksson frá Fram
Sverrir Bartolozzi frá Stjörnunni

Farnir:
Aron Jóhannsson í Grindavík
Björgvin Stefánsson í KR
Harrison Hanley
Sindri Scheving í Víking R. (Var á láni)
Terrance William Dieterich í Stjörnuna (Var á láni)
Trausti Sigurbjörnsson í Víking R.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.