Fotbolti.net
15.03.19 - 12:32
Arnar Daði Arnarsson

Laufey í KR (Staðfest)

Laufey er komin í KR.

Laufey er komin í KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Miðjumaðurinn Laufey Björnsdóttir hefur ákveðið að skipta yfir í KR frá HK/Víkingi.

Eftir að hafa leikið með Val frá árinu 2012 lék Laufey með HK/Víkingi í Pepsi-deildinni síðasta sumar þar sem hún lék 17 leiki í deild og einn í bikar.
Auk Vals og HK/Víkingi hefur hún leikið með Fylki, Breiðabliks og sameinuðu liði Þórs/KA/KS í efstu deild.

KR endaði í 8. sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra með 17 stig, stigi meira en HK/Víkingur.

Laufey er komin með leikheimild með KR og gæti því leikið sinn fyrsta mótsleik með KR gegn Fylki á morgun í Lengjubikarnum.

Komnar:
Sandra Dögg Bjarnadóttir frá ÍR
Guðmunda Brynja Óladóttir frá Stjörnunni
Laufey Björnsdóttir frá HK/Víkingi

Farnar:
Hrafnhildur Agnarsdóttir í námi í Danmörku
Mia Celestina Annete Gunter
Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir til Varde ÍF
Shea Connors
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.