Fotbolti.net
15.04.19 - 13:42
Elvar Geir Magnússon

Aron Einar ósáttur við Mike Dean: Átti klárlega að fá vítaspyrnu

Aron Einar var ekki sáttur með Mike Dean.

Aron Einar var ekki sáttur með Mike Dean.

Canon

Mynd: Getty Images

Aron Einar Gunnarsson, miðjumaður Cardiff, var ansi ósáttur við að fá ekki vítaspyrnu í 2-0 tapinu gegn Burnley á laugardaginn.

Aron vildi meina að Charlie Taylor hafi brotið á sér og Dean hefði átt að dæma vítaspyrnu
„Þetta var klár vítaspyrna. Dómarinn sagði að ég hefði verið að leita að snertingunni sem er ekki rétt. Ég hef aldrei gert það á ævinni," sagði Aron.

„Það var farið í ökklann á mér og ég er búinn að skoða þetta aftur. Fyrir utan teig hefði hann í 100% tilfella dæmt aukaspyrnu."

Cardiff er í erfiðri stöðu, í fallsæti og fimm stigum frá öruggu sæti.

„Við munum auðvitað berjast til loka. Á endanum gerðum við ekki nóg til að fá neitt gegn Burnley," sagði Aron sem er á sínu síðasta tímabili með Cardiff. Eftir tímabilið gengur hann í raðir Al-Arabi í Katar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.