Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 15. apríl 2019 16:45
Elvar Geir Magnússon
Gerir Barcelona risatilboð í Rashford?
Marcus Rashford er orðaður við Barcelona.
Marcus Rashford er orðaður við Barcelona.
Mynd: Getty Images
Barcelona vill fá sóknarmanninn Marcus Rashford í sumar samkvæmt frétt Mirror. Sagt er að Börsungar séu tilbúnir að gera 100 milljóna punda tilboð í enska sóknarmanninn.

Barcelona fær einmitt Manchester United í heimsókn annað kvöld í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Rashford á aðeins eitt ár eftir af nýjum samningi en United er með ákvæði um tólf mánuði til viðbótar.

Hinn 21 árs Rashford hefur einnig verið orðaður við Real Madrid.

Ole Gunnar Solskjær sér Rashford fyrir sér sem lykilmann í framtíðaráætlunum sínum.

Það má búast við talsverðum breytingum á leikmannahópi Börsunga í sumar en Philippe Coutinho er meðal leikmanna sem orðaðir eru við brotthvarf. Hann hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United.
Athugasemdir
banner