Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 19:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Aldrei gerst í sögu Real Madrid
Jude Bellingham
Jude Bellingham
Mynd: EPA
Alvaro Arbeloa, stjóri Real Madrid, er undir mikilli pressu en hans menn þurfa að snúa blaðinu við gegn Bayern í kvöld eftir 2-1 tap í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Madrid í síðustu viku.

Það er sjaldgæft að Real Madrid fari í gegnum tímabil án þess að vinna titla en liðið er níu stigum á eftir Barcelona í deildinni og féll úr leik gegn B-deildarliði Albacete í bikarnum. Meistaradeildin er því mögulega eina tækifærið til að vinna titil.

Byrjunarlið Real Madrid í kvöld vekur athygli en þetta er í fyrsta sinn í sögu Meistaradeildarinnar sem enginn Spánverji er í byrjunarliði liðsins. Spánverjarnir Dean Huijsen, Thiago Pitchard og Alvaro Carreras misstu sætið sitt og Eder Militao, Ferland Mendy og Jude Bellingham komu inn.

Staðan er 2-2 þegar það styttist í hálfleiksflautið og Bayern er því samanlagt með 4-3 forystu í einvíginu.


Slapp