Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 21:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arbeloa: Dómarinn eyðilagði leikinn
Mynd: EPA
Alvaro Arbeloa, stjóri Real Madrid, var mjög ósáttur eftir að liðið féll úr leik í Meistaradeildinni eftiir 4-3 tap gegn Bayern í kvöld. liðið tapaði viðureigninni samanlagt 6-4.

Fyrri hálfleikurinn var gríðarlega fjörugur en staðan var 3-2 fyrir Real Madrid og samanlagt 4-4 í einvíginu.

Eduardo Camavinga kom inn á hjá Real eftir klukkutíma leik en hann fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 86. mínútu fyrir að taka boltann upp og koma í veg fyrir að Bayern gæti tekið aukaspyrnu. Í kjöflarið skoruðu Luis Diaz og Michael Olise og tryggðu Bayern farseðilinn í undanúrslitin.

Arbeloa var ekki sáttur með brottreksturinn.

„Einvíginu lauk með rauða spjaldinu. Þetta er óskiljanlegt, dómarinn eyðilagði einvígið. Hann gaf honum annað gult spjald án þess að vita að hann væri þegar búinn að fá spjald. Það er ekki hægt að reka mann af velli fyrir þetta. Hann eyðilagði leik sem stefndi í að vera góður leikur. Leikmennirnir mínir spiluðu vel, ég er stoltur af liðinu," sagði Arbeloa.

Madrídingar voru mjög reiðir í leikslok og Arda Guler fékk rautt spjald fyrir mótmæli.
Slapp
banner
banner