Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 19:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fjör í Munchen - Skelfileg mistök Neuer en Bayern svaraði um hæl
Mynd: EPA
Real Madrid var 2-1 undir í einviginu gegn Bayern í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir fyrri leikinn á Spáni. Luis Diaz og Harry Kane skoruðu mörk Bayern en Kylian Mbappe minnkaði muninn.

Það voru aðeins 35 sekúndur liðnar af leiknum í Þýskalandi í kvöld þegar Real Madrid tókst að jafna metin í einvíginu.

Hinn fertugi Manuel Neuer gerðist sekur um hrikaleg mistök. Hann átti hrikalega sendingu sem fór beint á Arda Guler. Tyrkinn var ekki lengi að hugsa og skoraði af löngu færi á opið markið.

Bayern var hins vegar ekki lengi að svara. Aleksandar Pavlovic skoraði aðeins fimm mínútum síðar með skalla eftir hornspyrnu en Trent Alexander-Arnold og Andriy Lunin litu afskaplega illa út í varnarleiknum.

Sjáðu mark Guler
Sjáðu mark Pavlovic
Slapp
banner