Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Kompany: Þetta eru sögur annarra félaga
Vincent Kompany
Vincent Kompany
Mynd: Fótbolti.net
Verður það Remontada hjá Real Madrid í kvöld?
Verður það Remontada hjá Real Madrid í kvöld?
Mynd: EPA
Vincent Kompany, þjálfari Bayern München, segist ekki vera hræddur við einhverjar endurkomusögur og hrokann sem er í Real Madrid, en hann er vel einbeittur og klár í seinni leikinn sem er spilaður á Allianz-Arena í kvöld.

Þegar Real Madrid er undir í einvígi í Meistaradeildinni fara leikmenn, þjálfarar og stuðningsmenn að kasta orðinu Remontada í kosmósinn sem er spænska orðið yfir endurkomu.

Allir Madrídingar hafa tröllatrú á að komast í undanúrslitin, en það er 2-1 undir í einvíginu við Bayern og þarf nú að ná í úrslit í Þýskalandi.

Kompany segir það hins vegar vera mýtu að Real Madrid sé á toppnum þegar það kemur að endurkomu, en viðurkennir líka að þeir séu með frábært lið og að Bayern þurfi að undirbúa sig vel fyrir leikinn.

„Mér sýnist Real Madrid vera í þessum þróunarfasa núna, en þetta er samt eitt besta lið Evrópu. Ég sé samt ekki þessar fréttir um endurkomu (s. Remontada) sem eitthvað einstakt dæmi og þessar sögur eru ekki sannleikurinn. Þetta eru sögur annarra félaga á borð við Barcelona, Liverpool og Bayern München. Öll félög geta sagt sögur af stórkostlegum afrekum.“

„Ég trúi Real Madrid fullkomlega þegar þeir segjast geta komið til baka, en ég vil líka vinna leikinn. Það mun ekkert áhrif á mig fyrir þennan leik,“
sagði Kompany sem segir að Bayern hafi getað skorað fleiri mörk í fyrri leiknum.

„Það var ekki bara Real Madrid sem gat skorað fleiri mörk í fyrri leiknum því við gátum það líka. Þeir bættu sig vissulega í síðari og þessar 45 mínútur gáfu þeim möguleika meira sjálfstraust, en tilfinningin var mjög góð hjá okkur eftir fyrri hálfleikinn. Við getum gert enn betur. Það að vinna á Bernabeu gefur þér sjálfstraust en núna þurfum við að sanna það á Allianz.“

„Real Madrid með þessi gæði og þennan hraða getur verið mjög hættulegt lið, en við þurfum að einbeita okkur að okkar leik og hvernig við getum fundið lausnir,“
sagði Kompany.
Slapp
banner