Átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu lýkur í kvöld.
Arsenal tekur á móti Sporting á Emirates-leikvanginum en enska liðið er með eins marks forystu eftir seint sigurmark Kai Havertz í Portúgal.
Ef Arsenal tekst ætlunarverk sitt mun liðið spila í undanúrslitum í fyrsta sinn síðan 2009. Sigurvegarinn mætir Atlético Madríd sem henti Barcelona úr leik í gær.
Á sama tíma mun Bayern München mæta Real Madrid á Allianz-leikvanginum í München. Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Bayern þar sem Manuel Neuer átti stórleik í marki Bæjara.
Real Madrid er lang sigursælasta lið í sögu keppninnar með fimmtán titla en Bayern er þriðja sigursælasta liðið með sex titla. Sigurvegarinn úr þessari viðureign mætir Evrópumeisturum Paris Saint-Germain.
Leikir dagsins:
19:00 Arsenal - Sporting (1-0)
19:00 Bayern - Real Madrid (2-1)


