Declan Rice var í skýjunum eftir að Arsenal tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar eftir markalaust jafntefli gegn Sporting á Emirates í kvöld. Kai Havertz skoraði eina markið í einvíginu undir lokin í fyrri leiknum.
„Ég er svo ánægður. Þessir tveir leikir voru erfitt próf en það er stórkostlegt afrek að komast í undanúrslit tvö ár í röð og nú viljum við komast einu skrefi lengra og fara í úrslit. Við höfum mætt Atletico Madrid áður á tímabilinu og vitum við hverju á að búast," sagði Rice.
Arsenal hóf tímabilið af krafti en hefur verið í miklum vandræðum að undanförnu. Liðið sýndi ekki mikla takta í kvöld. Rice var spurður að því hversu pirrandi leikurinn var.
„Pirrandi? Við vorum að komast í undanúrslit, jákvæðni alla leið. Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst? Það eina sem skiptir máli er hvað hópnum finnst, hvað stjóranum finnst og við erum komnir aftur í undanúrslit."




