Það ræðst í kvöld hvaða lið fylgja PSG og Atletico Madrid í undanúrslit Meistaradeildarinnar. Arsenal er með eins marks forystu gegn Sporting og Bayern München leiðir með eins marks mun gegn Real Madrid. En til að stytta biðina eftir leikjum kvöldsins þá er um að gera að skoða slúðrið!
Manchester United er að fylgjast með tveimur leikmönnum Bournemouth; franska framherjanum Junio Kroupi (19) og argentínska varnarmanninum Marcos Senesi (28). (Mail)
Bayern München hefur áhuga á enska kantmanninum Anthony Gordon (25) hjá Newcastle. (TalkSport)
Aston Villa er nýjasta enska úrvalsdeildarfélagið sem sýnir enska markverðinum James Trafford (23) hjá Manchester City áhuga. Trafford er varamarkvörður City fyrir Gianluigi Donnarumma (27). (Mail)
Liverpool vill fá Bazoumana Toure (20) í sumar. Þessi kantmaður frá Fílabeinsströndinni hefur spilað virkilega vel fyrir þýska liðið Hoffenheim á tímabilinu og gæti komið með ferska vinda í sókn Liverpool. (Teamtalk)
Varnarmaðurinn Ibrahima Konate (26) er nálægt því að gera samkomulag um nýjan samning við Liverpool. Búist var við því að franski landsliðsmaðurinn myndi færa sig um set í sumar en hann gæti nú skrifað undir fjögurra ára framlengingu. (RMC)
Þýski miðvörðurinn Nico Schlotterbeck (26) er með riftunarákvæði í samningi sínum við Borussia Dortmund upp á 43-52 milljónir punda en bara þrjú félög geta nýtt það; þar á meðal Liverpool og Real Madrid en ekki Bayern München. (Bild)
Napoli vill framlengja samningi skoska miðjumannsins Scott McTominay (29) fyrir HM í sumar. Þessi fyrrum leikmaður Manchester United er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum ítalska liðsins. (Il Mattino)
Enski kantmaðurinn Jadon Sancho (26) þarf að sætta sig við umtalsverða launalækkun ef hann vill ganga aftur í raðir Borussia Dortmund þegar samningur hans við Manchester United rennur út í sumar. (Mirror)
Bournemouth er með Inigo Perez stjóra Rayo Vallecano, Frank Lampard stjóra Coventry og Kieran McKenna stjóra Ipswich á blaði hjá sér en Andoni Iraola hefur ákveðið að yfirgefa félagið eftir tímabilið. (i Sport)
Þýski stjórinn Marco Rose, sem var síðast með RB Leipzig, er talinn líklegastur til að taka við af Iraola hjá Bournemouth. (Guardian)
Argentínski varnarmaðurinn Cristian Romero (27) gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Tottenham Hotspur. Félagið hyggst taka rækilega til eftir tímabilið, sama þó liðið haldi sér. (TalkSport)
Coventry City vill fá enska framherjann Jesse Derry (18) frá Chelsea fyrir næsta tímabil. (TalkSport)

