Fotbolti.net
15.05.17 - 20:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Brynjar Jónasson frá Þrótti í HK (Staðfest)

Brynjar Jónasson.

Brynjar Jónasson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK hefur styrkt sig verulega fyrir átökin í sumar. Brynjar Jónasson, sóknarmaður, er genginn í raðir félagins.

Brynjar kemur til HK frá Þrótti R.. Hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki í Fjarðabyggð, en fór í Þrótt fyrir síðasta tímabil.
Ólafur Hrannar Kristjánsson gekk fyrr í dag í raðir Þróttar og því hefur Brynjari verið hleypt í HK.

Brynjar hefur spilað báða leiki Þróttar á tímabilinu. Hann kom inn á sem varamaður í fyrsta leiknum gegn Haukum, en byrjaði þann síðasta sem var sigur gegn ÍR.

HK hefur einn af fyrstu tveimur leikjum sínum í Inkasso-deildinni í sumar. Þeir unnu Leikni R. í síðustu umferð, 2-1.

Næsti leikur HK er gegn Leikni F. í Inkasso-deildinni á laugardag, þar gæti Brynjar spilað sinn fyrsta leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.