15.05.17 - 16:05
Magnús Már Einarsson
Fjórir erlendir leikmenn í KF (Staðfest)

Úr leik hjá KF í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KF hefur fengið fjóra erlenda leikmenn í sínar raðir fyrir keppni í 3. deild karla í sumar.
Um er að ræða þá Benjamin O\'Farrell, Ljubomir Delic, Milan Marinkovic og Miljan Mijatovic. Benjamin er frá Nýja-Sjálandi en hinir leikmennirnir þrír koma frá Serbíu.
Milan Marinkovic þekkir til hjá KF því hann lék vel í vörn liðsins í 2. deildinni sumarið 2015.

Allir leikmennirnir komu við sögu í 3-1 sigri KF á Dalvík/Reyni í fyrstu umferðinni í 3. deildinni á laugardag. Ljubomir Delic og Milan Marinkovic voru báðir á skotskónum þar.
KF féll úr 2. deildinni í fyrra en liðinu er spáð 6. sæti í spá þjálfara í 3. deildinni í sumar.