15.05.17 - 15:39
Magnús Már Einarsson
Fylkir fær norður-írska landsliðskonu (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson


Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Norður-írska landsliðskonan Caragh Milligan hefur gengið til liðs við Fylki í Pepsi-deild kvenna.
Caragh er fædd árið 1996 en hún er varnarmaður.
Caragh er fædd árið 1996 en hún er varnarmaður.
Fylkir er með þrjú stig eftir þrjár umferðir í Pepsi-deild kvenna.
Liðið fær Breiðablik í heimsókn í kvöld en Caragh fær ekki leikheimild fyrr en á morgun og því getur hún ekki tekið þátt í leiknum í dag.
Liðið fær Breiðablik í heimsókn í kvöld en Caragh fær ekki leikheimild fyrr en á morgun og því getur hún ekki tekið þátt í leiknum í dag.
