Fotbolti.net
15.05.17 - 15:15
Magnús Már Einarsson

Grétar Snær í HK á láni frá FH (Staðfest)

Grétar Snær í leik með FH.

Grétar Snær í leik með FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Grétar Snær Gunnarsson, miðjumaður FH, er á leið í HK á láni. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net höfðu fleiri félög í Inkasso-deildinni áhuga á Grétari en hann ákvað að ganga í raðir HK.

Grétar Snær er fæddur árið 1997 en hann gekk upp úr 2. flokki síðastliðið haust.

Í vetur spilaði Grétar mjög mikið með FH í bæði Fótbolta.net mótinu og Lengjubikarnum.

Í mars var Grétar í U21 árs landsliði Íslands sem mætti Georgíu og Sádi-Arabíu. Hann á einnig leikið að baki með U17 og U19 ára landsliði Íslands.

HK lagði Leikni R. 3-2 í Inkasso-deildinni á föstudag en liðið er með þrjú stig eftir tvo leiki. Næsti leikur HK er gegn Leikni Fáskrúðsfirði á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.