15.05.17 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Guðrún Gyða í KR (Staðfest)

Guðrún var á láni hjá Augnabliki í 1. deildinni í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

KR hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi leiki í Pepsi-deild kvenna en Guðrún Gyða Haralz er komin til félagsins á láni.
Guðrún Gyða er 17 ára framherji en hún hefur komið við sögu í einum leik í fyrstu þremur umferðunum í sumar með Breiðabliki.

Guðrún á að baki leikið með U19 og U17 ára landsliði Íslands.
KR er án stiga eftir þrjár umferðir í Pepsi-deild kvenna en liðið hefur ekki ennþá náð að skora í sumar. Guðrún á að reyna að hjálpa til við að bæta sóknarleikinn.
Næsti leikur KR er gegn FH í kvöld klukkan 18:00 en Guðrún er komin með leikheimild fyrir þann leik.