Fotbolti.net
15.05.17 - 15:22
Magnús Már Einarsson

Ivica Jovanovic í Víking R. (Staðfest)

Ivica Jovanovic í Víking R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur R. hefur fengið serbneska framherjann Ivica Jovanovic til liðs við sig.

Ivica er 29 ára gamall en hann getur spilað í fremstu víglínu og á kanti.

Ivica kemur frá FK Metalac í serbnesku úrvaldseildinni en hann skoraði fimm mörk í 21 leik þar á nýliðnu tímabili.

Lengst af á ferli sínum hefur Ivica leikið í úrvalsdeildinni í Serbíu en hann hefur einnig spilað með Rad Beograd og OFK Beograd. Þá var hann um tíma á mála hjá Lokeren í Belgíu.
Geoffrey Castillion, framherji Víkings, meiddist í tapleiknum gegn ÍBV í gær og verður eitthvað frá keppni.

Líklegt er því að Ivica taki stöðu Geoffrey í framlínunni gegn Haukum í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins á miðvikudaginn.

Víkingar hafa þrjú stig að loknum þremur leikjum í Pepsi-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.