Fotbolti.net
15.05.17 - 22:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jón Arnar Barðdal lánaður í ÍR (Staðfest)

Jón Arnar spilar með ÍR í sumar.

Jón Arnar spilar með ÍR í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR hefur fengið Jón Arnar Barðdal á láni frá Stjörnunni.

Hann er sóknarmaður sem var í láni hjá Fjarðabyggð á síðasta tímabili, en hann á nokkra leiki að baki með Stjörnunni.
Hann skoraði þrjú mörk í 14 leikjum í deild bikar fyrir Fjarðabyggð, sem féll úr Inkasso-deildinni.

Hann er úr sigursælum 1995 árgangi hjá Stjörnunni.

Hann leikur með ÍR í Inkasso-deildinni í sumar, en ÍR-ingar eru nýliðar í deildinni eftir að hafa rúllað upp 2. deildinni.

ÍR hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni, en næsti leiur þeirra í deildinni er gegn Haukum á sunnudaginn.

Næsti leikur ÍR er þó á miðvikudag á Akureyri. Þar mæta þeir KA í Borgunarbikar karla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.